139. löggjafarþing — 117. fundur,  4. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[19:14]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með síðasta ræðumanni að það er alls ófært að ræða þetta mál hér þegar flutningsmaður frumvarpsins, hæstv. forsætisráðherra, er ekki í húsinu.

En þá að öðru. Varðandi fundarstjórn forseta langar mig til að upplýsa að til stóð og samkomulag var um að þingfundur yrði til klukkan sjö í kvöld. Nú er klukkan kortér yfir sjö. Skyndileg ákvörðun forseta um að hafa fundinn til klukkan átta eins og leyft er í fundarsköpum — ég geri mér grein fyrir því, frú forseti, að það er leyfilegt — verður til þess að það brestur á mikil lausung í þingstörfum, samanber t.d. ef hæstv. forsætisráðherra er farin úr húsi. Það verður að breyta þessum vinnubrögðum, það verður að taka hér upp þau vinnubrögð að fólk geti stólað á hvernig vinnudagurinn lítur út hjá því. Ég er ekki að fara fram á að vikan sé skipulögð en alla vega að þegar þingmenn koma til vinnu á daginn (Forseti hringir.) viti þeir sirka hvenær þeir komist heim, en hæstv. forsætisráðherra á ekki lítil börn eins og margir þingmenn. (Forseti hringir.) En svona er planið hér. Þetta er ófært.