Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu og margar af þeim ræðum sem hafa farið fram hér í gær og í dag um þetta mál og tel ég að búið sé að fara efnislega talsvert vel yfir marga þætti lagafrumvarpsins.
Mig langar að velta upp ákveðnum þáttum þessa frumvarps, svolítið vegna þess að það virðist hafa verið asi á að koma því til þingsins. Þeir fáu stjórnarliðar sem tekið hafa þátt í umræðunni eru alls ekki sammála um ágæti þessa frumvarps. Þeir eru vægt til orða tekið algjörlega ósammála og þá kemur aftur upp, eins og hefur komið fram í máli margra hv. þingmanna, spurning mín um hvort um stjórnarfrumvarp sé að ræða. Er þetta stjórnarfrumvarp eða er þetta ekki stjórnarfrumvarp? Hversu margir ráðherrar styðja það, hversu margir ráðherrar styðja það ekki? Þetta er mjög spennandi spurning sem við fáum ekki svar við hér af því að hæstv. ráðherrar eru ekki í salnum til að svara.
Það er ekki bara vafi. Einn hæstv. ráðherra, innanríkisráðherra, afgreiddi málið út úr ríkisstjórn með fyrirvara. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bókaði mótmæli. Það kom vel fram í ræðu hans í gær að hann er ósáttur við marga þætti í lagafrumvarpinu. En það er eins og að það sé ekki nóg, heldur kom það fram í ræðu, reyndar andsvari minnir mig, hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur, að frumvarpið þyrfti mikla umræðu og vinnu í hv. allsherjarnefnd ef vel ætti að vera.
Ég átta mig illa á því hvers vegna stjórnarflokkarnir tóku bara ekki þá ákvörðun að bíða með málið og vinna það betur. Það er mjög erfitt og kannski ekki í anda þeirra breyttu vinnubragða sem alltaf er verið að kalla eftir. Það er kallað eftir nýju verklagi, samstarfi og öðru því sem ætti að vera lýsandi fyrir stofnun eins og Alþingi og það er því á skjön að fara svona með mikilvægt mál eins og þetta. Ég ræddi aðeins um skort á samráði í andsvari við hv. þm. Magnús Orra Schram í dag. Hv. þm. Magnús Orri Schram benti mér á að lesa bls. 6 í lagafrumvarpinu. Ég hafði gert það áður en ég fór í þetta andsvar. Ólíkt hv. þingmanni sat ég líka hér í tæpa átta klukkutíma í gær og hlustaði á hverja einustu ræðu um þetta mál. Þar kom skýrt og greinilega fram hjá öllum þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem töluðu — sem voru margir vegna þess að örfáir hv. þingmenn í stjórnarliðinu hafa rætt þetta mál í ræðustól — að samráð við stjórnarandstöðuna, a.m.k. Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk, var ekki neitt.
Ég ætla að fá að vitna hérna í athugasemdir við þetta lagafrumvarp á bls. 6, í texta um það samráð sem hv. þingmaður talar um, með leyfi forseta:
„Frumvarp þetta er samið í forsætisráðuneytinu í samráði við sérfræðinga á sviði stjórnsýsluréttar.“
Ég ætla að fá að fara aðeins neðar á þessa síðu og vitna í frumvarpið á öðrum stað, með leyfi forseta:
„Drög að frumvarpi þessu voru kynnt öllum ráðuneytum áður en þau voru afgreidd í ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi. Þá voru drögin jafnframt kynnt fulltrúum stéttarfélaga starfsmanna Stjórnarráðsins.“
Drögin voru kynnt í öllum ráðuneytum, drögin voru kynnt fulltrúum stéttarfélaga starfsmanna ráðuneytanna. Drögin voru unnin og samin í samráði við sérfræðinga á sviði stjórnsýsluréttar. Drögin voru ekki kynnt almennum þingmönnum, drögin voru ekki kynnt þeim þingflokkum sem eiga sæti hér og eru með þingmenn á Alþingi.
Mér finnst þetta ekki merki um mikið samráð. Kannski er það vegna þess að hv. þm. Magnús Orri Schram heyrði ekki allar ræðurnar hér í gær eins og ég sem hv. þingmaður áttaði sig ekki á því hvað ég var að fara þegar ég ræddi um þetta svokallaða samráð. Hv. þingmaður, sem er því miður ekki í salnum, hefur farið mikinn í þessum ræðustól í að ræða um ný vinnubrögð og nýtt verklag, er það sem við köllum nýr þingmaður og hefur vilja til að breyta hér vinnubrögðum. Ég trúi vel að hv. þingmaður vilji gera það og ég held að honum gangi bara gott til, en ég get ekki fundið það mikla samráð sem hv. þingmaður hélt fram í andsvörum við mig í dag að væri til staðar.
Svo ég komi mér að öðru langar mig aðeins að ræða annað sem kom fram í ræðu hv. þm. Magnúsar Orra Schrams, um að gagnrýnin á þetta frumvarp væri ekki efnisleg. Hv. þingmaður var ekki ánægður með umræður um frumvarpið en hins vegar hefur ekki verið nein smágagnrýni af efnislegum toga á 2. gr. frumvarpsins. Hún hefur verið gagnrýnd í marga klukkutíma. Það hefur farið fram gagnrýni á fleiri greinar frumvarpsins vegna þess að gagnrýni er að rýna til gagns. Hér hefur líka verið komið inn á greinar sem margir hv. þingmenn hafa bara verið ánægðir með og meira að segja viljað bæta í. Við erum að rýna til gagns og ég held að þeir sem standa að þessu frumvarpi, hæstv. forsætisráðherra og þeir stjórnarþingmenn sem við vitum ekki hverjir eru, eigi að hlusta á þessa gagnrýni af því að gagnrýni er að rýna til gagns.
Í framhaldi af því að ég er hérna að fara yfir að þetta sé ekki nógu gott og þetta sé bara svona og svona langar mig líka að benda á að ef þetta frumvarp hefði eitt og sér komið upp í hendurnar á okkur þingmönnum, án forsögunnar, er ég ekki viss um að ræður hv. þingmanna hefðu verið á þennan hátt. Forsaga málsins gefur tilefni til þessarar umræðu og hæstv. forsætisráðherra var mjög hissa á því. Ég gæti tekið undir það hjá hæstv. forsætisráðherra ef forsaga málsins væri ekki sú sem hún er.
Hv. þm. Ásmundur Einar Daðason hefur margoft bent á það í ræðustól að frumvarp sem kom fram um Stjórnarráðið hafi verið, við skulum ekki segja rekið til baka en það hefði þurft að taka út ákveðnar greinar. Hv. þingmenn hafa talað í ræðustól um að frumvarpið eins og það kemur fyrir sé lengsta uppsagnarbréf Íslandssögunnar. Í fleiri en einni og fleiri en tveimur ræðum hv. þingmanna í þessum ræðustól hefur komið fram að 2. gr. sé til þess fallin að auka vald hæstv. forsætisráðherra svo hann geti tekið til sín jafnvel málefni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Allt þetta eru bara góðar og gildar athugasemdir vegna forsögu málsins.
Eitt í viðbót, það bætist líka í að nokkrum dögum áður en þetta frumvarp kom inn í þingið voru lögð fram drög, sem reyndar urðu aldrei neitt nema drög af því að þau komust ekki neitt áfram á sameiginlegum fundi íslensku þingmannanefndarinnar og Evrópusambandsins, þar sem því var fagnað að leggja ætti niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Það er ekki hægt að efast um þann tilgang að það ætti að gera þessa hluti auðveldari. Ég er ekki að segja að hæstv. forsætisráðherra ákveði strax á morgun að að gera einhverjar breytingar ef frumvarpið verður samþykkt en vegna forsögunnar er þessi umræða mjög vel við hæfi.
Svo ég tali ekki bara á neikvæðum nótum vil ég nefna að ég tel vel byggjandi á ákveðnum greinum í þessu frumvarpi, m.a. segir í 21. gr., með leyfi forseta:
„Enn fremur er heimilt að starfsmenn sem ráðnir eru ótímabundið til starfa í ráðuneyti flytjist á milli ráðuneyta um afmarkaðan tíma eða varanlega enda liggi fyrir samþykki beggja ráðherra fyrir flutningnum og starfsmannsins sjálfs.“
Ég held að þessi grein gæti gengið lengra. Ég held til dæmis að það hafi komið skýrt fram í hruninu að það hefði verið mjög gott ef það hefði verið hægt að færa starfsmenn ráðuneytanna til. Þarna eru mjög góðar greinar sem þarfnast bara lagfæringa. Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að aðeins einn hv. þingmaður, fyrir utan hæstv. forsætisráðherra, sem hefur talað hér sé ánægður með þetta frumvarp. Hann er eini ræðumaðurinn úr þingmannanefndinni sem telur þetta smella sem flís við rass við þá gagnrýni sem kom fram í skýrslu þingmannanefndarinnar.
Það hlýtur að vera eitthvað að þegar svona margir hv. þingmenn gagnrýna frumvarpið. Hv. þingmenn sem voru í þingmannanefndinni sem fór yfir rannsóknarskýrslu Alþingis eru á einu máli um að þetta séu ekki þau vinnubrögð sem skuli viðhöfð, þetta mæti ekki þeim athugasemdum sem gerðar voru. Við verðum að gera betur, þetta er Alþingi Íslendinga, það er okkar starf að reyna að koma hlutum þannig fyrir að virðing sé borin fyrir því starfi sem fer hér fram á þinginu og að við vöndum okkur.
Í sambandi við mikilvægi þess, eins og fram kemur í 21. gr., að hægt sé að færa til starfsmenn langar mig að taka lítið dæmi þar sem ég er kennari. Í mínu sveitarfélagi voru skólarnir sameinaðir og þar eru tvær starfsstöðvar. Ef við værum ráðin til annarrar starfsstöðvarinnar en ekki til grunnskólans, þessu getur svipað til Stjórnarráðsins, þetta er tvískipt, gæti hist þannig á að eitt árið sætum við uppi með tvo kennara í unglingaskólanum sem ég hefði engin verkefni fyrir af því að svo fáir nemendur kæmu inn en ég þyrfti að ráða kennara í yngribarnaskólann vegna þess að þar vantaði starfsmenn. Það verður að vera flæði til að hægt sé að nýta alla starfsmenn og ég held að enginn starfsmaður sé glaður í vinnunni ef hann hefur ekki verkefni. Ef við erum með starfsmenn sem hafa tíma og geta tekið að sér fleiri verkefni á það að vera hæstv. ráðherra í sjálfsvald sett að færa þá á milli.
Lykillinn er að málið er vanbúið. Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að aðeins einn hv. þingmaður, fyrir utan hæstv. forsætisráðherra, hafi sagt að málið væri gott, enginn annar. Ég held að það sé sá útgangspunktur sem við eigum að nota. Þetta mál fer inn í allsherjarnefnd og það þarf að laga það allt saman. Það er ýmislegt sem hægt er að byggja á en svona vinnubrögð eiga að vera aflögð á Alþingi, það á ekki að vera í boði að fólk sem stjórnar og situr saman í ríkisstjórn geti ekki komið sér saman um stjórnarfrumvarp um Stjórnarráð Íslands.