Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni innleggið og spurningarnar. Ég skal vera alveg hreinskilin. Fyrsta daginn sem ég kom inn á þing í desember fannst mér þingmenn bara eins og óþekkir krakkar hérna, allir að blaðra í salnum á meðan ræðumaður er í stólnum, það er alltaf verið að sussa á fólk, þetta var bara eins og óþekkur bekkur, og það á jafnt við um stjórn og stjórnarandstöðu.
Ég held að það vinnulag sem viðhaft er og skortur á samráði séu leifar af gömlum pólitískum, mig langar helst ekki að segja skotgröfum en pólitískum deilum. Svona voru hlutirnir, þeir sem voru í minni hluta áttu að sjálfsögðu alltaf að vera rosalega á móti þeim sem voru í meiri hluta og það eimir eftir af þessu. Það er bara þannig.
Það er ekki allt slæmt sem kemur frá ríkisstjórninni þó að mér finnist margt slæmt en það er ekki allt og ekki heldur frá stjórnarandstöðunni. Það er næstum allt gott þaðan náttúrlega.