Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Það kom fram í ræðu hv. þingmanns áðan að einhverjir hv. þingmenn teldu að skort hefði á efnislega umræðu, efnislega gagnrýni á það frumvarp sem hér er rætt. Ég hygg að þegar farið er í gegnum ræður þingmanna komi í ljós að mesta gagnrýnin er efnisleg og á 1.–5. gr. svona um það bil, fleiri greinar hafa vitanlega verið nefndar.
Í ljósi þess að hjá öllum eða a.m.k. allflestum er ríkur vilji til að reyna að ná sátt og samstöðu um breytingar sem skipta verulegu máli og byggðar eru á þingmannaskýrslunni svokallaðri, og ef hv. þingmaður mætti gefa þeim er standa fyrir þessu frumvarpi gott ráð, gæti það ráð verið að leggja til að þeir hlutir sem augljóslega eru hvað mestar deilur um séu settir til hliðar svo hægt sé að klára góða hluti sem eru í frumvarpinu?