139. löggjafarþing — 118. fundur,  5. maí 2011.

afturvirkni laga.

[11:02]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vildi óska að hv. þingmaður hefði skýrt betur út hvað hann átti við. Ég er ekki alveg með á nótunum hvaða mál hv. þingmaður er að tala um. (Gripið fram í.) Ég er tilbúin að ræða við hann um hvaða mál nákvæmlega hann er að tala. Varðandi vaxtabæturnar er það mál sem ég mun skoða eins og ég hef hér nefnt.