landsdómur.
Forseti. Já, ég hlustaði mjög vandlega á ræðu hv. þm. Birgis Ármannssonar og ég heyrði það, alveg eins og í 1. umr., að þá talaði hann ekki um að þetta væri hugsanlega skásta leiðin heldur væri það niðurstaða þingmannsins að þetta væri skásta leiðin. Ég skal ekki segja hvort hann sagði líklega, líklega skásta leiðin. Það þýðir að hv. þingmaður hefur komist að niðurstöðu án þess að tala við sérfræðinga í réttarfari og þá prófessora sem hann einu sinni sat í kjöltu þeirra að nema lög. En þetta segir hv. þingmaður vegna þess, hvað sem um hann má segja að öðru leyti, að hann er heiðvirður og réttskiptinn og er ekki í neinum feluleik með skoðanir sínar og viðhorf, a.m.k. ekki enn.
Svona er þetta. Þetta er líka niðurstaða okkar. Auðvitað er þetta ekki heppilegt, ég tek undir það með hv. þingmanni. Það er ekki heppilegt að Alþingi sé að breyta lögunum um landsdóm þegar slíkt dómsmál er í gangi. En þetta er skásta, að ég ekki segi besta lausnin á þeirri stöðu sem núna er uppi. Eða vildi hv. þingmaður og félagar hans í Sjálfstæðisflokknum sem hafa staðið á móti þessu máli allan tímann hafa þetta öðruvísi? Vildu þeir að við kysum núna nýja dómara í þetta mál? Var það þannig? Nei, auðvitað ekki.
Erindi þeirra gegn þessu máli á sér aðrar rætur. Málflutningur þeirra er líka holhljóma vegna þess að sá kjarni máls sem við stöndum hér frammi fyrir stafar af því að lögin sem farið var eftir og við hlutum að fara eftir vegna þess að ekki voru til nein önnur, eru 48 ára gömul, frá árinu 1963, og þeim hefur ekki verið breytt frá þeim tíma, ekki í einu einasta atriði. Það sem meira er, sjálfstæðismenn hafa allan þennan tíma staðið á móti öllum hugsanlegum breytingum á þessum lögum, m.a. þeim sem hæstv. núverandi innanríkisráðherra lagði til fyrir áramótin og vitnað var til í ræðunni. Þó hafa þeir haft til þess, ef þeir voru á móti lögunum, allan þennan tíma sem liðinn er síðan þau voru sett þegar Sjálfstæðisflokkurinn (Forseti hringir.) var í ríkisstjórn en á þeim tíma (Forseti hringir.) telst mér til að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið ein 38 ár við stjórnvölinn og oftast með dómsmálaráðherrann líka.