139. löggjafarþing — 120. fundur,  10. maí 2011.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

77. mál
[15:18]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, er honum sammála í öllum meginatriðum en vil þó segja sitthvað vegna ummæla hans um orkukosti sem Landsvirkjun hefur haft uppi í fjölmiðlum og á fundum. Í fyrsta lagi hef ég ekki átt þess kost að kynna mér hvað er á bak við þær fullyrðingar Landsvirkjunar og þess vegna er best að tala mjög varlega þangað til það er komið upp. Hins vegar veit ég að á undanförnum árum og jafnvel áratugum hafa verið uppi ýmsar getgátur um, hvað á maður að segja, virkjunarmagnið, um það sem í fyrsta lagi væri hægt að virkja og í öðru lagi það sem hagkvæmt væri að virkja eða hugsanlegt að virkja, m.a. af umhverfisástæðum. Mér hafa komið á óvart þær háu tölur sem landsvirkjunarforráðamenn hafa nefnt í því sambandi og hafa fundist þær vera nokkuð á skjön við það sem þeir sömu landsvirkjunarforráðamenn töluðu um fyrir ekki mjög löngu.

Ég veit að í skýrslu orkustefnunefndar koma fram tölur um þetta. Þær eru allháar. Ég hef heyrt formann þeirrar nefndar skýra út hvað býr þar að baki og hann margtók það fram að þar væri ekki um neina stefnu að ræða eða endanlegt mat, heldur væri leikið með tölur sem annars staðar eru fengnar. Af þessu tilefni hvet ég menn til að fara mjög varlega með tölur sem nefndar eru í þessu sambandi. Það er klárt að aðstæður hafa breyst hér á hverjum einasta áratug, jafnvel á hverju ári, í þessum efnum og óþarfi að fá dollaramerki í augun þótt Hörður Arnarson (Forseti hringir.) nefni háar tölur.