139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

niðurstaða kærunefndar jafnréttismála og rýnihóps.

[10:35]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ráðuneytið og sú sem hér stendur kaus að fara í þetta mál með tvíþættum hætti. Í fyrsta lagi að ríkislögmaður færi yfir með ráðuneytinu hvernig bregðast ætti við niðurstöðu kærunefndar og í annan stað að fá rýnihóp til að skoða niðurstöðu kærunefndar og það ferli sem ráðuneytið fór í að því er varðar þetta sérstaka tiltekna mál. Ég held að það hafi verið mjög gagnlegt að setja þennan rýnihóp af stað vegna þess að hann kemst að tiltekinni niðurstöðu. Niðurstaðan er sú að það liggur fyrir að ólíkum aðferðum var beitt við að meta hæfni umsækjenda og það sé meginástæðan fyrir því að niðurstöðurnar voru svo ólíkar sem raun ber vitni fremur en að ráðningarferlið hafi verið með þeim hætti að hæfasti umsækjandinn hafi ekki verið ráðinn.

Það var auðvitað nauðsynlegt með tilliti til framtíðarinnar að skoða hvernig taka ætti á þessu máli, enda hefur ráðuneytið brugðist við niðurstöðu rýnihópsins og sent jafnréttisráði og velferðarráðuneytinu sem fer með jafnréttismál hugmyndir sínar og tillögur sem fram komu hjá rýnihópnum um hvernig taka eigi á þessum málum í framtíðinni. Varðandi úrskurð kærunefndar þá fórum við mjög vel yfir það og fyrir liggur niðurstaða ríkislögmanns í því máli. Þar kemur fram að þrátt fyrir að ýmis atriði hefðu getað réttlætt málshöfðun til ógildingar úrskurði kærunefndar var það mat ríkislögmanns að ýmislegt réttlætti málshöfðun. Vilji minn er að leita sátta í þessu máli, freista þess að ljúka því með sátt og því hef ég falið ríkislögmanni að hefja formlega sáttaumleitan í málinu. Ég tel að þetta sé eðlilegt. Ég ætla ekki að leita með þetta mál til dómstóla. Ég veit ekki hvað viðkomandi einstaklingur gerir sjálf sem þessi niðurstaða lá fyrir um, hvort hún höfðar skaðabótamál. Það verður auðvitað að vera hennar mál en ég tel eðlilegt að í fyrstu tilraun sé reynt að leita sátta í þessu máli.