139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

niðurstaða kærunefndar jafnréttismála og rýnihóps.

[10:38]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað alrangt að ég sé með einhver undanbrögð í þessu máli eða komin út á hálar brautir. Ég tel ástæðu til þess í tilefni af orðum hv. þingmanns að minna hann á ráðningu dómara í Hæstarétti þar sem Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, réði þann sem var skipað í sjöunda sæti. Einn af þeim sem var hæfari að dómi lögskipaðrar hæfnisnefndar fór með málið fyrir dóm, vann það og voru dæmdar skaðabætur upp á 500 þús. kr. Mér finnst það skjóta mjög skökku við þegar hv. þingmaður segir að hér sé um undanbrögð að ræða þegar verið er að leita skýringa á svo mismunandi mati kærunefndar og ráðuneytisins sem var með sérfræðing í málinu. Það er til þess að í framtíðinni verði hægt að taka á slíku og beita samræmdum matsferlum í sambærilegum málum. Það er auðvitað mjög eðlilegt. Ríkislögmaður taldi meðal annars að full ástæða væri til að fara með þetta fyrir dómstóla en ég vil freista þess að leita sátta í málinu og þannig stendur málið nú.