fjárfestingar og ávöxtun lífeyrissjóðanna.
Virðulegi forseti. Varðandi síðustu orð hv. þingmanns vil ég gleðja hana með því að það er akkúrat pólitískur möguleiki til að taka upp betri gjaldmiðil. Hann heitir evra og hann er sérstaklega hannaður til þess að vera tekinn upp af nýjum ríkjum samhliða aðild að Evrópusambandinu. (Gripið fram í.) Það er mjög mikilvægt að við stígum áfram skref í þá átt að við getum tekið hana upp sem allra fyrst. Það mun hjálpa okkur við afnám gjaldeyrishafta og að taka með öðrum hætti á því ójafnvægi sem við er að fást í efnahagslífinu núna.
Við þurfum að meta ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna. Við þurfum að horfa á hvort hún hafi áhrif til þess að vextir hér séu almennt hærri en ella.
Ég er ekki sammála þeirri niðurstöðu hv. þingmanns að lífeyrissjóðakerfið sé vandamál út af fyrir sig eða að það sé dæmt til að mistakast vegna þess að fjárfestingartækifæri skorti. Verkefni okkar er að fjölga þeim. Við erum í skuldaúrvinnslunni að skapa ný tækifæri í fyrirtækjum sem koma með þokkalega skuldabyrði út og eru vænlegir fjárfestingarkostir. Við viljum fjölga fjárfestingarkostunum. (Forseti hringir.) Það þarf að stækka kökuna, það þarf að gefa fleirum færi á að að fjárfesta í fjölbreyttari eignum og lífeyrissjóðir verða að geta fjárfest í öðru en bara ríkisskuldabréfum.