139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

mannréttindi samkynhneigðra í Úganda.

[11:03]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra viðbrögðin. Ég vil jafnframt spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún hyggist beita sér fyrir því að Ísland vinni á alþjóðavettvangi að þrýstingi á úgönsk stjórnvöld ásamt þeim ríkjum sem eru framarlega í baráttu fyrir mannréttindum og hvort hún muni ekki þrýsta á hæstv. utanríkisráðherra með að hann bindist þeim ríkjum sem veita þróunaraðstoð til Úganda böndum um að dregið verði úr aðstoðinni eða hún hreinlega stöðvuð ef svo á fram að halda. Ég veit að Þýskaland sem er stór stuðningsaðili við Úganda hefur haldið Úganda í ákveðinni spennu út af þessu máli en það virðist ekki duga nú á tímum vaxandi ólgu í Úganda. Því tel ég að öll stjórnvöld ríkja sem virða mannréttindi verði sameiginlega að bregðast við því ástandi (Forseti hringir.) sem nú ríkir í Úganda.