139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

staða minni og meðalstórra fyrirtækja.

[11:21]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Langflest íslensk fyrirtæki eru samkvæmt skilgreiningu lítil eða meðalstór eða allt að 90% allra fyrirtækja á landinu. Það má ætla að þetta séu eitthvað á þriðja tug þúsunda fyrirtækja sem eru þess vegna stærstu atvinnuveitendur landsins og standa undir drjúgum hluta verðmæta og atvinnusköpunar í landinu.

Hrunið bitnaði mjög illa á einmitt þessum fyrirtækjum sem svo sættu að margra mati afgangi í endurskipulagningu skulda hjá bönkunum, kannski vegna þess hve þau voru miklu minni en hin útblásnu og ofvöxnu fyrirtæki sem féllu hvert um annað þvert í kjölfar hrunsins en einnig vegna álags í bönkunum vegna skuldavanda heimila.

Það var því mjög mikilvægt skref þegar Beina brautin var opnuð í desember sl. í samstarfi ríkisstjórnar, atvinnulífs og fjármálastofnana en henni er einmitt ætlað að hraða endurskipulagningu þessara litlu og meðalstóru fyrirtækja sem eiga í skuldavanda og henni átti að ljúka núna um mitt ár.

Endurskipulagningin hefur gengið hægar en vonir stóðu til og þetta hefur oft borið á góma bæði hér í þingsal og í hv. viðskiptanefnd. En ég verð að segja að þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra kom með hér áðan eru mjög góðar fréttir, sem sé þær að samt sem áður, þó að okkur hafi fundist hægt ganga, munu stærstu bankarnir standa við þau markmið sem sett voru; að þessari úrvinnslu ætti að ljúka núna fyrir mitt þetta ár. Það er mikilvægt að loka ekki heldur augunum fyrir þeirri staðreynd að nú þegar hafa tæplega þúsund fyrirtæki farið Beinu brautina. Í lok mars sl. þegar um 400 fyrirtæki höfðu farið þá leið höfðu verið afskrifaðar að meðaltali um 50 millj. kr. hjá hverju fyrirtæki. En það er mikilvægt að þau 500–600 fyrirtæki sem enn bíða (Forseti hringir.) fái úrlausn sinna mála á allra næstu vikum.