139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

afbrigði um dagskrármál.

[11:40]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar að það er sjálfsagt að veita afbrigði gagnvart góðum málum eða bara almennt. Hins vegar gilda ákveðnar starfsreglur í þinginu og eitt af því sem hefur verið gagnrýnt mjög mikið er hvað ráðuneytin hafa komið seint með málin í þingið. Það hefur ekkert með það að gera hvort málin eru góð eða ekki. Ég get ekki séð annað en að þetta séu ágætismál, t.d. um fjármálafyrirtækin og svo er frumvarpið um gjaldeyrismálin auðvitað nauðsynlegt. Ég held þó að það hefði átt að liggja fyrir mun fyrr, sérstaklega hvað varðar endurnýjun heimildarinnar. Ég hvet því að minnsta kosti þá ráðherra og verkstjórann sjálfan, hæstv. forsætisráðherra, sem munu tala fyrir málinu að taka tillit til þess. Komið hafa ítrekaðar ábendingar um að ráðuneytin verði að standa betur við þann tímafrest sem Alþingi setur varðandi framlagningu mála.