fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta yfirferð yfir þetta mál. Það er reyndar mjög stutt síðan frumvarpinu var dreift. Mér hefur alla vega ekki unnist tími til að setja mig inn í það af einhverju viti.
Ég held að þetta mál snerti annað mjög stórt mál, kannski stærsta málið sem varðar íslenskan efnahag, sem er: Hvenær komum við eignarhaldi í réttar hendur? Hæstv. ráðherra sagði að þetta frumvarp væri til að reyna að stytta þann tímaramma. Það er náttúrlega ekki eðlilegt að núna nærri þremur árum eftir hrun sé ekki enn þá búið að ganga frá því hverjir eiga t.d. bankana á Íslandi. Mér sýnist að enginn sem vinnur í þessum undirstöðum efnahagslífsins eigi peningana sem hann fer með. Menn eru skipaðir út og suður af opinberum aðilum og hafa í rauninni engan hvata til að klára málið því að eins og kom fram eru þeir með hærri laun en gengur og gerist. Af hverju ættu þeir að klára verkefnið?
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Liggur fyrir einhver tímarammi um það hvenær kröfuhafar eignast gjaldþrota bankana? Hvenær kemur að því að þeir verða eigendur innlendu bankanna og þurfa þá hugsanlega að vinna meira að því að komast á beinu brautina?
Á meðan enginn á þessi fyrirbæri og í þeim eru allir meira og minna opinberir starfsmenn eða tilnefndir af þeim þá er akkúrat enginn hvati til að klára málið. Það kemur fram alls staðar. Ég hef talað um fé án hirðis. Þetta er allt saman allsherjarfé án hirðis.