almenn hegningarlög.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (mansal).
Í frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á 227. gr. a almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, um mansal. Annars vegar er lagt til að refsing fyrir mansal verði hækkuð úr 8 ára fangelsi í 12 ára fangelsi og hins vegar er lagt til að í stað þess að við verknaðarlýsingu á mansali í 1. tölulið 1. mgr. 227 gr. a sé vísað til 226. gr. almennra hegningarlaga í heild sinni er lagt til að þar verði einungis vísað til 1. mgr. 226. gr.
Undanfarin ár hefur sérstök áhersla verið lögð á að berjast gegn mansali á Íslandi. Í mars 2009 samþykkti ríkisstjórnin aðgerðaáætlun gegn mansali og í samræmi við þá samþykkt var í nóvember það ár skipað sérfræði- og samhæfingarteymi um mansal sem m.a. hefur það hlutverk að tryggja yfirsýn og þekkingu á mansalsmálum og að þolendur mansals fái viðeigandi vernd og aðstoð.
Með dómi Hæstaréttar frá 16. júní 2010 var í fyrsta skipti sakfellt fyrir mansal hér á landi. Í málinu voru fimm menn fundnir sekir fyrir hlutdeild í mansalsbroti gegn 19 ára stúlku sem beitt hafði verið ólögmætri nauðung og annarri ótilhlýðilegri meðferð í heimalandi sínu áður en hún kom til Íslands. Talið var sannað að mennirnir hefðu hver með sínum hætti átt hlut í því að flytja stúlkuna hingað til lands eða á milli staða hérlendis og hýsa hana á ákveðnu tímabili. Var jafnframt talið sannað að stúlkan hefði verið flutt hingað til lands til að stunda vændi. Þar sem ekkert lá fyrir til sönnunar á því hvort mennirnir hefðu framið verknaðinn í eigin þágu, frekar en sem hlutdeildarmenn í broti annars manns, eins eða fleiri, sem ekki hefði orðið uppvíst um, voru þeir dæmdir sekir fyrir hlutdeild í mansalsbroti. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að samverknaður þeirra laut að því að svipta unga konu, sem mátti sín lítils, frelsi til þess að ráða ferðum sínum og dvalarstað í þeim tilgangi að láta hana leggja stund á vændi hér á landi. Var sá mannanna sem ríkastan þátt var talinn eiga í brotinu dæmdur til fimm ára fangelsisrefsingar en hinir til fjögurra ára fangelsisrefsingar.
Í mansali felst alvarlegt brot gegn þeim einstaklingi sem er sviptur frelsi sínu. Í ljósi alvarleika þessara brota og með hliðsjón af þeim refsingum sem liggja við brotum á 194. gr. almennra hegningarlaga um nauðgun og 226. gr. almennra hegningarlaga sem fjallar um frelsissviptingu, en við hinu fyrra broti getur legið allt að 16 ára fangelsi og hinu síðara allt að ævilangt fangelsi, er í frumvarpinu lagt til að hámarksrefsing fyrir brot á 227. gr. a almennra hegningarlaga verði hækkuð úr 8 ára fangelsi í 12 ára fangelsi. Á það ber sérstaklega að líta að brot gegn framangreindum ákvæðum eru oft liður í mansalsbroti.
Þessi breyting hefur jafnframt í för með sér að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, um að maður geti verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna, teljast uppfyllt að því er varðar mansalsbrot.
Þá þykir jafnframt rétt að breyta ákvæðinu á þann veg að það tæmi ekki sök gagnvart brotum í 2. mgr. 226. gr. laganna, þar sem mælt er fyrir um að við frelsissviptingu sem framin hefur verið í ávinningsskyni eða verið langvarandi liggur fangelsi ekki skemur en eitt ár og allt að sextán árum eða ævilangt. Þykir rétt að unnt sé að beita ákvæði 2. mgr. 226. gr. samhliða broti á 227. gr. a.
Hæstv. forseti. Ég hef gert grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins. Ég legg því til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til allsherjarnefndar og 2. umr.