139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

fríverslunarsamningur EFTA og Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa.

682. mál
[14:48]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er á ferðinni tillaga til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa og landbúnaðarsamnings milli Íslands og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa.

Hér er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar þessara tveggja samninga en þeir voru undirritaðir 22. júní árið 2009 í Hamar í Noregi.

Fríverslunarsamningurinn við aðildarríki Flóabandalagsins er af svokallaðri annarri kynslóð fríverslunarsamninga og inniheldur, auk ákvæða um vöruviðskipti, ákvæði um þjónustuviðskipti, fjárfestingar, hugverkaréttindi, samkeppnismál, opinber innkaup, stofnanaákvæði og ákvæði um lausn ágreiningsmála. Þó nær þessi samningur ekki yfir fjárfestingar.

Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og aðildarríkja Flóabandalagsins er viðbótarsamningur og gerður með vísan til fríverslunarsamninganna. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki aðildarríkja Flóabandalagsins veitist Íslandi niðurfelling tolla af innflutningi á lifandi hrossum, lambakjöti og vatni.

Vöruútflutningur til aðildarríkja Flóabandalagsins var nokkur á síðasta ári og nam 500 millj. kr., einkum vegna vöruútflutnings til Sádi-Arabíu. Um er að ræða ýmiss konar iðnaðarvörur, svo sem lyf og kísiljárn, svo og sjávarafurðir. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins en af hálfu ríkja Flóabandalagsins falla niður tollar af stærstum hluta sjávarafurða frá og með gildistöku samningsins en fimm ára aðlögunartími verður af örfáum sjávarafurðum, svo sem lýsi.

Samkvæmt samningunum fallast EFTA-ríkin og aðildarríki Flóabandalagsins á að veita rýmri markaðsaðgang á ákveðnum sviðum þjónustuviðskipta umfram núverandi skuldbindingar samkvæmt Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Á móti veitir Ísland ríkjunum markaðsaðgang á sviði ýmiss konar sérfræðiþjónustu, t.d. verkfræðiþjónustu, fjarskiptaþjónustu, dreifingarþjónustu, fjármálaþjónustu, umhverfisþjónustu, ferðaþjónustu og á sviði sjóflutninga. Við umfjöllun nefndarinnar var á það bent að öðrum þriðju ríkjum hafi verið veittur hliðstæður markaðsaðgangur í öðrum fríverslunarsamningum EFTA-ríkjanna, t.d. Suður-Kóreu.

Þessir samningar, bæði fríverslunar- og landbúnaðarsamningarnir, eru mikilvægir til að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra fyrirtækja, að mörkuðum aðildarríkja Flóabandalagsins. Með þessum samningum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í þeim ríkjum sem eru aðilar að þessum samningi.

Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Valgerður Bjarnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Björgvin G. Sigurðsson og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.