139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

fríverslunarsamningur EFTA og Perús og landbúnaðarsamningur Íslands og Perús.

683. mál
[14:51]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er um að ræða þingsályktun um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Perús og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Perús.

Þessir samningar voru undirritaðir var af ráðherrum EFTA-ríkjanna í Reykjavík 24. júní 2010 annars vegar og í Líma í Perú 14. júlí 2010 og landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Perús var undirritaður sama dag.

Þessi fríverslunarsamningur er af því sem kallað hefur verið önnur kynslóð fríverslunarsamninga. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að við gerð samningsins var ákveðið að semja ekki um markaðsaðgang á sviði þjónustuviðskipta, heldur skyldi hefja samningaviðræður um það efni að ári liðnu frá gildistöku samningsins.

Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Perús er viðbótarsamningur og gerður með vísan til fríverslunarsamninganna. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki Perús veitist Íslandi niðurfelling tolla á lifandi hrossum og vatni við gildistöku samningsins en á lambakjöti í skrefum.

Vöruútflutningur til Perús er lítill. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins. Af hálfu Perús falla niður tollar af stærstum hluta þeirra sjávarafurða sem Ísland flytur að jafnaði út. Aðlögunartími er á nokkrum vörum, svo sem síld og lýsi.

Þessir samningar eru mikilvægir til að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra fyrirtækja, að mörkuðum í Perú. Með samningunum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í Perú.

Utanríkismálanefnd leggur til að þessi tillaga verði samþykkt.

Björgvin G. Sigurðsson og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Valgerður Bjarnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.