139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

fríverslunarsamningur EFTA og Serbíu og landbúnaðarsamningur Íslands og Serbíu.

684. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er til umfjöllunar þingsályktunartillaga um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Serbíu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Serbíu.

Þessir samningar voru undirritaðir í Genf 17. desember 2009.

Hér er um að ræða fríverslunarsamninga sem eru kenndir við svokallaða fyrstu kynslóð fríverslunarsamninga sem ná þó yfir vöruviðskipti, en þar eru jafnframt almenn ákvæði um vernd hugverka, fjárfestingar, þjónustuviðskipta og opinber innkaup.

Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Serbíu er viðbótarsamningur og hann er gerður á grundvelli heimilda í fríverslunarsamningum. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki Serbíu veitist Íslandi niðurfelling tolla af vatni, lifandi hrossum og hangikjöti. Tollar á lambakjöti lækka um helming, úr 30% niður í 15%, auk magntolls. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að líkt og á Íslandi er lambakjötsframleiðsla mikil í Serbíu og greinin viðkvæm fyrir utanaðkomandi samkeppni. Vöruútflutningur til Serbíu var nokkur á síðasta ári og nam 670 millj. kr., mest fyrir sjávarafurðir og lyf. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins. Af hálfu Serbíu falla tollar á iðnaðarvörum niður frá gildistöku samningsins í skrefum en Serbía fær aðlögunartíma til ársins 2014 á hluta sjávarafurða.

Eins og aðrir fríverslunarsamningar eru þessir samningar mikilvægir til þess að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra, að mörkuðum í Serbíu. Með samningunum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í Serbíu.

Utanríkismálanefnd leggur til að þessi tillaga verði samþykkt.

Björgvin G. Sigurðsson og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið skrifa Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Valgerður Bjarnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.