rannsókn á athöfnum þingmanna í tengslum við búsáhaldabyltinguna í janúar 2009.
Virðulegi forseti. Ég undrast í raun mjög æsinginn í þessari umræðu í ljósi þess að hér er verið að tala um rannsókn til að fá ákveðna hluti á hreint. Þeir sem hvað hæst hafa talað hér um hve ómögulegt þetta sé hafa ekki legið á liði sínu við að samþykkja rannsóknir á vegum Alþingis. (Forseti hringir.) Ég vil hins vegar taka fram vegna orða hv. þingmanns um tilefni þessarar þingsályktunartillögu að þau eru kannski nokkur, m.a. bréf frá Landssambandi lögreglumanna til forseta Alþingis. Það bréf gefur alveg tilefni til eitt og sér að leggja tillöguna fram.
Í ljósi þess að hér er kallað eftir forseta Alþingis og mér er kunnugt um að forseti er að ég held að sinna gesti frá Rússlandi (Gripið fram í.) geri ég ekki athugasemdir við það þó að þessari umræðu verði frestað. Auk þess er það mjög gott, held ég, því að þá geta fleiri tekið þátt í henni. Það er þörf á því að fleiri ræði þetta mál.
Ég vil þó, herra forseti, að lokum fagna því að hv. þm. Álfheiður Ingadóttir hefur lýst yfir að hún muni samþykkja þessa tillögu. Ég vona að allir þingmenn geri það því að við höfum hingað til, eins og minni mitt rekur til, verið sammála þegar fram koma tillögur í þá veru að rannsaka eitthvað sem við teljum að megi verða til þess að eyða vantrú á Alþingi eða skýra hlutina og því fagna ég orðum hv. þingmanns.