breytingar á stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Þetta var mjög upplýsandi innlegg frá hæstv. fjármálaráðherra. Það kemur sem sagt í ljós að meginatriðið, áhrifin af breytingunum, er nokkuð sem á að kanna síðar. Við ætlum að kollvarpa sjávarútvegskerfinu, við ætlum að leggja fram um það frumvarp á Alþingi, svo ætlum við að sjá til síðar hvort það er efnahagslega eitthvert vit í því fyrir þjóðina. Þetta er efnislega það sem ráðherrann var að segja. Ríkisstjórnin virðist ætla að berja hausnum við steininn og halda því áfram fram að hægt sé að gera svona grundvallarbreytingar á greininni án þess að það hafi áhrif á afkomu fyrirtækjanna eða stöðu þeirra.
Skuldsetningin sem ég nefndi áðan, 270 milljarðar við viðskiptabankana, talað er um að nettóskuldirnar séu um það bil 400 milljarðar, er vissulega mikil en staða greinarinnar er miklu betri en annarra atvinnuvega í landinu. Staða greinarinnar til að standa undir þessari skuldabyrði er ágæt. En hæstv. ráðherra sem mælti hér með frumvarpinu er annar af tveimur ráðherrum sem eru einu þingmennirnir í þessum þingsal sem enn sitja eftir að lögin frá 1990 (Forseti hringir.) voru samþykkt. Hann sagði þá að framsalið yrði aflvaki framfara fyrir greinina og til hagræðingar. Núna á að banna það, og allt það sem helst átti að mæla með aukinni hagræðingu þá á að banna eða hætta við í dag.