sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og að leggja þetta frumvarp fram. Ekki ætla ég að koma hingað og tala gegn hugmyndafræðinni í þessu. Eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra skipaði ég nefnd í nóvember 2007 til að gera tillögur að réttlátari, einfaldari og gagnsærri greiðsluþátttöku einstaklinga í kostnaði lyfja og annarrar heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að verja einstaklinga gegn háum kostnaði.
Virðulegi forseti. Ætla mætti að allir hefðu verið sammála þessum markmiðum og sá sem stýrir þessari nefnd er í salnum, hv. þm. Pétur H. Blöndal, og varaformaður var núverandi virðulegi forseti þingsins, hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Ég held að á engan sé hallað þó að sagt sé að þetta fólk vann ötullega og samviskusamlega ásamt fleiri aðilum því að þetta var þverpólitísk nefnd. Bæði voru fulltrúar frá öllum stjórnmálaflokkum og líka frá hinum ýmsu hagsmunasamtökum sem fóru mjög vel yfir þetta mál og gríðarlega mikil vinna var unnin og mikið af gögnum lá til grundvallar. En það fór samt þannig, virðulegi forseti, að hæstv. ráðherra Ögmundur Jónasson lagði nefndina niður án þess að setja neitt annað í staðinn. Því hefur vinna við að ná markmiðum legið niðri í alllangan tíma eða þar til hæstv. ráðherra Álfheiður Ingadóttir setti vinnuhóp af stað vorið 2010.
Frumvarp þetta tekur einungis á lyfjakostnaði. Þannig hófum við vegferðina á sínum tíma, að taka bara lyfjakostnaðinn. En þegar menn skoða þessi mál komast flestir að þeirri niðurstöðu, í það minnsta komumst við að þeirri niðurstöðu að þeir sem þurfa mjög á þjónustunni að halda hvort sem þeir eru langveikir eða alvarlega sjúkir og verða fyrir oft óheyrilegum kostnaði, að það kemur á sama stað niður fyrir það fólk hvort sem reikningurinn snýr að lyfjum eða annarri heilbrigðisþjónustu. Það er hrikalegt ósamræmi í kostnaði eða réttara sagt greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þess vegna þó að það yrði stærra og viðameira verk komumst við að þeirri niðurstöðu að skynsamlegt væri að taka þetta allt saman fyrir, þ.e. bæði almenna heilbrigðiskostnaðinn, hvort sem það væri lyfjakostnaður eða annað.
Við erum nú komin á þann stað að fram er komið frumvarp, og í sjálfu sér er það þakkarvert, þar sem einungis lyfjakostnaður er tekinn fyrir og markmiðið er að koma hámarki á heildarlyfjakostnað og að þak verði sett á útgjöld þeirra einstaklinga sem greiða mest. En það þýðir auðvitað ákveðna millifærslu sem gerir það að verkum að við hin sem erum svo lánsöm að þurfa lítið á lyfjum að halda þurfum að greiða meira en við gerðum áður. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að það verði 22.500 kr. á ári en ef ég skil umræðuna rétt í svörum við andsvörum hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar mun það verða eitthvað hærri upphæð til að endar nái saman. Ef sú reglugerð sem hér er sem fylgiskjal með frumvarpinu nær fram að ganga metur fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins svo að umframútgjöld gætu orðið á bilinu 200–320 millj. kr. og ef ég skil hæstv. ráðherra rétt verður því náð með því að breyta upphæðinni í reglugerðinni. Ég held því að skynsamlegt væri að breytt reglugerð, miðað við þessar fjárlagaforsendur, lægi til grundvallar, bæði í umfjöllun nefndarinnar og ekki síður þegar þetta hefur verið kynnt fyrir þeim fjölmörgu hagsmunaaðilum sem tengjast málinu. Ég verð að viðurkenna að ég kann ekki að slá fram hver upphæðin verður. Hún færi þá væntanlega úr 22.500 kr. í eitthvað hærri upphæð en hæstv. ráðherra getur kannski upplýst okkur um það í umræðunni ef hann hefur það nokkurn veginn á takteinum.
Virðulegi forseti. Ég veit að gert er ráð fyrir að þessi lög taki gildi 1. október á þessu ári. Það þýðir einfaldlega að taka verður sumarið í þessa vinnu. Frumvarpið fer væntanlega til heilbrigðisnefndar núna, ef ég man rétt hittumst við í fyrramálið og getum þá sent málið til umsagnar. Umsagnir koma væntanlega til baka á lokadögum þingsins og ef hv. heilbrigðisnefnd ætlar að vinna þetta vel, það er afskaplega áríðandi í þessum mikilvæga og viðkvæma málaflokki að verði gert, verður að vera einhver tími til þess. En ef við ætlum að klára og gera þetta að lögum 1. október er hugsunin væntanlega sú að ræða þetta í stubbnum eða þingi sem er frá 1. september og stendur í tvær vikur. Það er mjög skammur tími ef við hittumst ekkert í millitíðinni. Ég mundi ætla að skynsamlegt væri, ef til stendur að gera frumvarpið að lögum 1. október, að vinna það þá í þinghléi í hv. heilbrigðisnefnd.
Á sama hátt og ég fagna því að þetta sé fram komið þá veldur það mér vonbrigðum að ekki hafi allt saman verið undir, þ.e. heilbrigðisþjónustan, því að menn þurfa ekki að nýta heilbrigðisþjónustuna mikið til að átta sig á því að mjög lítið samræmi er á milli greiðsluþátttöku. Hugsunin er sú að ef maður liggur á spítala yfir nótt greiði maður ekki neitt en ég hef legið á spítala yfir nótt, ég man ekki hvernig það kom til en ég borgaði einhverja tugi þúsunda sem var svo sem allt í lagi í mínu tilfelli að gera og gerði engar athugasemdir við það. Það er hins vegar mjög lítið samræmi á milli t.d. göngudeildarþjónustu annars vegar og hins vegar því að liggja á spítala, komu til sérfræðinga o.s.frv. Það truflar okkur kannski lítið sem erum lánsöm og þurfum lítið á heilbrigðisþjónustunni að halda. En það fólk sem þarf virkilega á slíkri þjónustu að halda finnur fyrir því. Það finnur fyrir því að heilbrigðiskostnaðurinn getur orðið hár vegna þess að það er ekki heildarhugsun í kerfinu. Ég man það sérstaklega, og það er ein ástæðan fyrir því að ég lagði eins mikið á mig og ég gat að breyta þessu, að það kom eitt sinn til mín í viðtalstíma kona, sem er nú fallin frá í blóma lífsins en var með langvinnan banvænan sjúkdóm, sem upplýsti vel hvernig þessi mál komu við hana sem sjúkling.
Það er nú svo að fólk hefur um nóg að hugsa þegar kemur að sjúkdómum þó að fjárhagsáhyggjur þurfi ekki líka að koma til þar sem við Íslendingar erum svona í grunninn, fullyrði ég, sammála um hvaða hugsun við viljum hafa í heilbrigðisþjónustunni. Við viljum sjá til þess að heilbrigðisþjónustan sé á heimsmælikvarða og við viljum að allir geti fengið að njóta þess, sama í hvaða aðstöðu fólk er og hvar það býr. Við verðum að vera tilbúin, stjórnmálamenn og embættismenn, að leggja á okkur þá vinnu að gera þjónustuna þannig úr garði að hún uppfylli þau skilyrði. Það er auðvitað ekki hægt að gera allt. En sú vinna sem var unnin í Péturs Blöndals-nefndinni og það fyrirkomulag sem er í þeim löndum sem við berum okkur saman við sýnir okkur að hægt er að gera miklu betur. Þetta er svo sannarlega skref í rétta átt en ég hefði kosið að við ættum eftir allan þennan tíma — þessi vinna hófst í nóvember 2007, nú er maí 2011 — að vera í þeim sporum að vera búin að breyta kerfinu. Við breytum hins vegar ekki því sem á undan er gengið en ég vonast til að núverandi hæstv. ráðherra sé sömu skoðunar og vilji að við ekki bara göngum í það verk að taka fyrir lyfin heldur alla heilbrigðisþjónustuna í heild sinni og mun ég gera hvað ég get til að styðja hæstv. ráðherra í því.
Ég lít svo á að nú sé verkefnið hafið varðandi a.m.k. hluta af þessu en legg áherslu á að til að það megi ganga vel sé afskaplega mikilvægt að við vinnum það vel og verði í forgangi hjá hv. heilbrigðisnefnd og hún taki líka þann tíma sem þarf til að vinna það vel. Ef við gerum það ekki getur það komið illa niður á þeim sem þurfa á þjónustunni að halda og mjög mikilvægt að fulltrúar þeirra sjúklingasamtaka sem nota lyf, ætli það séu ekki öll sjúklingasamtök, geti komið að þeirri vinnu.
Síðan er það auðvitað stórt mál í þessu öllu saman sem snýr að heilbrigðismálunum og kom fram í andsvari hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar, það er fjárhagsstaðan og fjárlögin. Nú hefur verið upplýst og ég veit ekki hversu oft ég hef varað við því í þessum ræðustól, bæði fyrir fjárlögin núna og líka fyrir fjárlögin þar á undan, að menn hafa ekki hugsað það hvernig endar eigi að ná saman hjá Sjúkratryggingum og hvernig menn ætluðu að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með í fjárlögum. Því miður voru þessar áhyggjur á rökum reistar og nú liggja þær upplýsingar fyrir úr fjárlaganefnd að allt að því 2 milljarða halli verði á Sjúkratryggingunum vegna þess að það hefur ekki komið nein pólitísk leiðsögn um það hvernig menn ætluðu að láta enda ná saman þar og stendur upp á núverandi ríkisstjórn að gera það. Sá vandi fer ekki frá okkur. Núna eru sérfræðingar ekki lengur á samningi og það fyrirkomulag sem er komið upp með endurgreiðslurnar eftir að þeir fóru af samningi mun a.m.k. ekki leiða til sparnaðar. Það er alveg öruggt. Ég hef af þessu miklar áhyggjur og við þurfum að ræða þetta bæði í þingsal og í hv. heilbrigðisnefnd vegna þess að þetta kemur niður annaðhvort á annarri heilbrigðisþjónustu eða fjárhag ríkissjóðs í heild sinni með auknum vaxtagreiðslum. Þeir peningar sem eru umfram munu ekki koma af himnum ofan, það er það eina sem er alveg fullkomlega öruggt.
Hvað þetta mál varðar, virðulegi forseti, er þetta skref í rétta átt og við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í hv. heilbrigðisnefnd munum fara yfir það með opnum huga. Maður kemst auðvitað ekki hjá því að svekkja sig á þeim tíma sem hefur tapast en þar er ekki við núverandi hæstv. ráðherra að sakast en ég hvet hann til dáða hvað þetta varðar og vonast til að þetta sé fyrsta skrefið í því að laga kerfið okkar.