139. löggjafarþing — 128. fundur,  17. maí 2011.

sjúkratryggingar.

784. mál
[16:25]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi tannlækningakostnað gætum við náttúrlega farið sömu leið og Norðmenn. Það er dálítið harkaleg leið, þeir taka bara þrjú lægstu verðin á markaðnum en það er reyndar í sambandi við lyf hjá þeim. Við gætum tekið þrjú lægstu verð fyrir ákveðna aðgerð hjá tannlæknum og sett sem mörk þess sem sjúkratryggingar greiða, þ.e. miðað við efri mörkin á þremur lægstu verðum. Sjúkratryggingar mundu borga það og restina viðkomandi einstaklingur. Þetta mundi væntanlega virka þannig að fólk mundi streyma til þeirra tannlækna sem bjóða lágt verð og ættu reyndar að gera það hvort sem er.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um aldraða einstaklinga. Þeir eiga einhvern veginn að vera vesalingar í þessu og borga minna. En sumir aldraðir eru mjög vel settir, bæði eignalega og tekjulega. Ég veit um aldraða sem hafa í lífeyri um hálfa milljón á mánuði og gott betur. Það er dálítið ankannalegt ef aldraður einstaklingur með hálfa milljón á mánuði í lífeyri greiðir lægri lyfjakostnað á meðan einhver sem vinnur umönnunarstörf með 200 þús. kr. á mánuði, og annast kannski hinn aldraða, borgar hærra verð fyrir lyfin sín sem eru kannski þau nákvæmlega sömu. (Gripið fram í.) Mér finnst þetta dálítið ankannalegt.

Ég held að ég sé enginn jafnaðarmaður, frú forseti. Ég vil gæta réttinda einstaklingsins og ekki flytja lakari lífskjör frá einum einstaklingi til annars sem hefur betri lífskjör.