139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

tilkynning um dagskrá.

[14:02]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Forseti vill geta þess að atkvæðagreiðslur verða að loknum liðnum um störf þingsins.

Þá fer fram umræða utan dagskrár um verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Málshefjandi er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson og hæstv. umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.