139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að ræða mál sem við höfum oft rætt í þinginu, í rauninni núna í nokkur ár. Ástæðan fyrir því er sú að málið er grafalvarlegt. Hér er um að ræða lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem er nú búið að reyna að koma í gegnum þingið í rúm tvö ár. Það snýr að nýju innstæðutryggingakerfi. Þar er verið að herða á gamla kerfinu sem kom okkur í Icesave-málið sem við þekkjum og ég þarf ekki að fara í gegnum hér en það mál allt saman er byggt á gallaðri tilskipun Evrópusambandsins.

Það sem er verið að keyra í gegn núna er enn þá gallaðri löggjöf en sú sem var til staðar áður. Það er orðrómur um að það eigi jafnvel að keyra þetta í gegnum þingið núna og gera að lögum á föstudaginn án þess að hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra verði viðstaddur þá umræðu. Að auki má nefna að við erum núna með mál á vettvangi ESA sem tengist þessu máli beint og þess vegna er mikilvægt að stíga varlega til jarðar. Að auki er nýtt frumvarp í Evrópuþinginu byggt á nýrri tilskipun og það er í vinnslu nákvæmlega núna. Það er alveg ljóst að ef það nær fram að ganga sem allar líkur eru á þarf aftur að breyta þessum lögum. Ég vona að það sé ekki rétt en orðrómur er uppi um að það eigi að klára á föstudaginn.

Virðulegi forseti. Við tölum oft um virðingu þingsins og stöðu. Það er ljóst að framkvæmdarvaldið hefur ekki farið yfir sjónarmið og hagsmuni Íslands í þessu máli við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, það hefur komið fram. Núna er tækifærið fyrir okkur til að kynna okkar málstað (Forseti hringir.) fyrir Evrópuþinginu. Ég mundi ætla að sérstaklega Samfylkingin sem stjórnar Evrópusambandinu ætti að vera til í (Forseti hringir.) að við héldum vörð um hagsmuni Íslands, kynntum málstað okkar (Forseti hringir.) í Evrópuþinginu og biðum með að klára þetta mál, virðulegi forseti.