139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

störf þingsins.

[14:12]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Þegar litið er yfir heimsbyggðina sjá menn glöggt að það er mjög náið samhengi milli öflugs velferðarkerfis og öflugs atvinnulífs. Hvergi nokkurs staðar er til gott velferðarkerfi án þess að það sé öflugt atvinnulíf. Fyrir fjórum eða fimm árum höfðum við fjórar stoðir undir atvinnulífinu, fjármálamarkaðinn sem hrundi sem kunnugt er, sjávarútveginn, álið sem malar gull og ferðaþjónustuna.

Nú er gerð atlaga að einni grunnstoðinni, þ.e. sjávarútveginum, með því að menn ætla að taka upp bann við framsali sem hefur verið aðall og arðsemi kerfisins. Það er mjög auðvelt að sanna það. Það er verið að ríkisvæða hluta af kvótanum, það er verið að auka strandveiðar sem ég hef upplýsingar um að skili lakara hráefni og skaði okkur á mörkuðum. Það er sem sagt verið að eyðileggja eina af þremur grunnstoðum sem eftir eru undir velferðarkerfinu og ég spyr hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, 4. þm. Reykv. s. sem var formaður félags- og tryggingamálanefndar en er núna varaformaður og hefur mikinn áhuga á velferðarkerfinu, hvort henni lítist vel á þessa þróun, hvort hún samþykki það að aðalarðsemin í þjóðfélaginu sé tekin burt og við munum þurfa að skerða enn frekar velferðarkerfið, enn frekar þjónustuna og auka þess utan skattlagningu á þá sem eru vinnandi í þjóðfélaginu og þurfa að standa undir þessu þannig að þeir hugsanlega fylgi öðrum eftir til Noregs.