139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

meðhöndlun úrgangs.

186. mál
[14:37]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ágæt samstaða hefur tekist um þetta — ég ætlaði að fara að segja einfalda mál sem það er nú ekki en þó tiltölulega óflókna úrgangsmál samkvæmt evrópskum reglum að hluta til, nema hvað hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur kosið að flytja tillögu sem er til höfuðs efnahagssvæði Evrópu. Ég styð efnahagssvæði Evrópu og segi því nei við tillögunni.