139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.

[15:06]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga málefni. Það hefur komið í ljós að við staðfestingu ráðherra á verndaráætluninni komu ýmsir hagsmunahópar fram, Landssamband hestamanna, Skotvís, 4x4, vélsleðamenn o.fl., og kvörtuðu bæði undan samráðsleysinu og að ekki skyldi hafa verið tekið meira tillit til sjónarmiða þeirra. Snerist það auðvitað að mestu leyti um aðgengi en líka um veiðar eins og hér hefur komið fram.

Í verndaráætlun þjóðgarðsins og í þjóðgarðinum sjálfum felast gríðarleg tækifæri. Við skulum ekki gleyma því. Ég held að þar hafi tekist vel til á margan hátt. Hins vegar þurfum við að velta fyrir okkur úr því að þetta heitir verndaráætlun um hvað hún snýst og af hverju hún heitir þetta. Þegar við tölum um rammaáætlunina í orkumálum er talað um vernd og nýtingu. Af hverju erum við ekki að tala hér um nýtingu? Til hvers er þjóðgarður ef við ætlum bara að loka honum og vernda hann? Það hlýtur að snúast um einhverja nýtingu. Þess vegna finnst mér skorta nýtingarsjónarmið og það lýsir sér í þeirri umræðu sem orðið hefur um málið.

Þetta er stærsti þjóðgarður Evrópu, 13% af landinu. Þetta er gríðarlegt svæði. Það hlýtur að vera pláss fyrir alla þá aðila sem málshefjandi minntist á án þess að þeir þurfi að óttast að rekast hver á annan, fólk og veiðar, hestar og vélar, svo eitthvað sé nefnt.

Mig langar aðeins að nefna á þessum stutta tíma hvernig við flokkum þjóðgarða. Það eru til einir sex alþjóðlegir staðlar og við röðumst í næstefsta flokk í vernduninni. Ég held að það sé óþarfi. Þegar við erum að tala um svona gríðarlega stórt svæði held ég að þjóðgarðurinn geti verið að einhverju leyti í efsta flokki, að einhverju leyti í þessum verndarflokki og síðan í öðrum flokkum samkvæmt þessum alþjóðlega staðli þar sem fólk getur átt eðlilegt líf. Ég bendi til að mynda á þjóðgarð Skota því að innan hans lifa 20 þús. manns (Forseti hringir.) eðlilegu lífi. Sum svæði hans eru hins vegar friðlýst og vernduð. Það er eitthvert slíkt fyrirkomulag sem ég held að við þyrftum að fara að velta meira (Forseti hringir.) fyrir okkur. Ég óttast að við göngum of langt í verndun, en hugsum of lítið um nýtingu.