verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Forseti. Ég þakka þessa umræðu. Þjóðgarðar eru meðal fárra svæða í heiminum þar sem náttúran fær fyrst að njóta vafans og síðan maðurinn. Mér finnst frábært hvað við höfum stórt svæði hérlendis sem þjóðgarð. Það hefur samt komið fram töluvert mikil gagnrýni á framkvæmd og annað.
Mig langaði að fylgja svolítið eftir þeim spurningum sem var beint til ráðherra á þessum opna fundi og lúta þá sérstaklega að einföldum hlutum eins og tillagan frá SAMÚT um að fá að aka Vonarskarð, t.d. seinni hlutann í ágúst eftir að göngumenn eru farnir. Mig langaði líka að kanna hvort eitthvert tillit hefði verið tekið til þess að þeir sem kæmu á bíl mættu tjalda og væri ekki skikkaðir til að fara inn í skála Ferðafélags Íslands. Síðan langaði mig að spyrja hvort það sé möguleiki, ég veit ekki hvort þetta eru réttar tölur, en ef þær eru réttar, að það séu of mikil hagsmunatengsl milli Ferðafélags Íslands og svæðisráðsins. Er það rétt sem ég hef heyrt, að 75% fulltrúa í svæðisráði komi frá Ferðafélagi Íslands?
Síðan er ljóst að við verðum aðeins að leyfa þessu skipulagi að einhverju leyti að njóta vafans. Þetta er risastór þjóðgarður. Það hlýtur að koma reynsla á skipulagið og auðvitað hlýtur það að þróast hvernig garðurinn verður notaður eftir því sem reynsla kemur á hverjir sækja hann.