almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að staðfesta að í störfum félags- og tryggingamálanefndar kom fram að hv. þingmenn Pétur Blöndal, Guðmundur Steingrímsson og Íris Róbertsdóttir, stjórnarandstöðuþingmennirnir í nefndinni, styddu hækkun bóta, eins og kom náttúrlega fram um áramótin, en þau gerðu að mínu mati réttmætar athugasemdir við að útreikningar á leiðunum lægju ekki fyrir og við þá leið sem farin yrði.
Ég ítreka að mér finnst þetta vera réttmæt sjónarmið og við höfum lagt til að fá kynningu á þeirri leið sem verður fyrir valinu og útreikningum í fyrramálið í félags- og tryggingamálanefnd. Ég býst því við að við getum farið áfram með málið þá og séð hvað er í spilunum. En við treystum okkur ekki til að bíða eftir því einmitt vegna þess hve mikilvægt er að bæturnar verði greiddar út um mánaðamótin. Þess vegna sættum við okkur við þessi vinnubrögð sem ég tel að hafi verið réttilega gagnrýnd af hálfu stjórnarandstöðunnar innan félags- og tryggingamálanefndar.