almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál og vil að það verði unnið hratt og vel. Eins og fram kom í máli hv. formanns félags- og tryggingamálanefndar, Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, er nefndin sammála um að þessa breytingu þurfi að leyfa en eins og ég ræddi á fundinum, og hv. þm. Pétur Blöndal kom inn á líka, er ekki hægt að ætlast til þess að þingmenn kvitti upp á opinn tékka. Það er bara ekki hægt. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur: Hvar er ráðuneytið statt í ferlinu? Þegar við hittum fólk frá ráðuneytinu síðastliðinn mánudag, 16. maí, var samráðið eftir við hagsmunaaðila, það átti eftir að ákveða leiðina og reikna út endanlegar upphæðir. Mér fannst mjög mikil vinna eftir. Ég er hjartanlega sammála hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, ég efast ekki um að það sé gífurlegt vinnuálag í ráðuneytunum, sérstaklega núna þar sem allar nefndir eru fullar af málum og það er verið að reyna að koma málum út úr nefndum.
Ég ætla að vona að við getum afgreitt þetta mál á morgun en það verður náttúrlega mjög erfitt, virðulegi forseti, ef þær upplýsingar liggja ekki fyrir sem þurfa að liggja fyrir þegar Alþingi Íslendinga ætlar að samþykkja auknar fjárskuldbindingar sem eru ekki á fjárlögum. En ég hef fullan skilning á málinu og því að þetta gerist fyrir mánaðamót.
Því vil ég spyrja: Veit hv. þingmaður hvar málið er statt í ferlinu og hvort líkur eru til þess að upplýsingarnar liggi fyrir í fyrramálið?