139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

almannatryggingar.

797. mál
[15:46]
Horfa

Íris Róbertsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ánægð að heyra að þetta liggi vonandi fyrir. En það er ein spurning sem mig langar til að beina til hv. þingmanns: Treystir hv. þingmaður sér til þess að fara áfram með málið og taka ákvörðun um þetta á morgun ef þessar upplýsingar liggja ekki fyrir?