139. löggjafarþing — 130. fundur,  19. maí 2011.

Byggðastofnun.

721. mál
[11:13]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Mér láðist að geta þess áðan að formaður iðnaðarnefndar hefur léð því máls að taka málið að nýju inn til nefndarinnar milli 2. og 3. umr. og kalla meðal annars til gesti. Fyrir það vil ég þakka. Það er mikilvægt að við verðum við slíkum beiðnum þegar þær koma fram þegar málin eru greinilega viðkvæm eins og sést á atkvæðatöflunni.