139. löggjafarþing — 130. fundur,  19. maí 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

824. mál
[14:07]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er gott að hv. þingmaður rifjar þessa ágætu nefnd upp fyrir mér. Ég lagði mikla vinnu og alvöru í að starfa í henni og skrifaði held ég sex síðna plagg um skattlagningar og skattlagningarhugmyndir. Ég hef aldrei séð það plagg neins staðar birt eða neitt slíkt. Ég hygg að nefndin sé meira til skrauts og til að geta sagt frá því á tyllidögum að stjórnarandstaðan hafi verið með.