mótun framleiðslustefnu í lífrænum landbúnaði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni fyrir undirtektirnar. Eins og ég sagði áðan er synd að við skulum ekki hafa svolítinn tíma til að ræða þetta efni en ég er sannfærð um að við erum ekki að tala um samkeppni á milli hefðbundins íslensks landbúnaðar og þess landbúnaðar sem er lífrænt vottaður. En við þurfum að gera meira en eingöngu að koma upp aðlögunarkerfi og stuðningskefi við þá sem vilja fara yfir í lífræna framleiðslu því að það er ekki bara greiðslan til bændanna og stuðningur við þá heldur ýmislegt annað sem þarf líka að koma til.
Við getum séð það t.d. varðandi fóðurframleiðslu. Stór hluti af því sem verið er að flytja inn í dag er erfðabreytt fóður og maísinn allur. Það verður nú trúlega eitthvað í það að bændur sem vilja vera í lífrænum búskap eða lífrænt vottuðum búskap fari í svínarækt. En það gætu einhverjir viljað vera með framleiðslu í hænsnarækt eða einhverju slíku en það er erfitt fyrir þá að fá maís sem er ekki erfðabreyttur. Það þarf því að huga að ýmsu svona löguðu til að það sé mögulegt.
Graskögglar. Ef við erum að hugsa um það fóður, er nægileg framleiðsla hér á landi? Getum við gert betur og það sé þá þannig vottað að það dugi fyrir lífræna ræktun? Köfnunarefnisplöntur sem framleiða köfnunarefni, það þarf að stuðla að því að sú ræktun komist verulega á skrið. Það er því ýmislegt í umhverfinu annað en beinar greiðslur. Sumir segja sem betur fer og aðrir segja, eins og ég, með vafasamri gleði að hér séu að verða loftslagsbreytingar þannig að betri skilyrði verði fyrir ræktun, svo sem kornrækt.
Við eigum auðvitað að stuðla að því að vera sjálfum okkur nóg í matvælaframleiðslu. Allt sem við getum framleitt sjálf og ræktað hér á landi eigum við að gera. Það er út af matvælaöryggi, til að spara gjaldeyri og til að auka atvinnu, en slík ræktun verður líklega aldrei alfarið lífræn. En við þurfum að huga að því að vera ekki eftirbátar nágrannaþjóða okkar og eiga þá frekar möguleika á að flytja út slíka vöru. Við höfum möguleika á að stórauka framleiðslu í gróðurhúsum og ylrækt. Auðvitað eigum við að nýta okkur það. Það gæti orðið okkar næsta stóriðja ef við tökum þá stefnu. Sú stefna gæti líka verið að það yrði lífræn framleiðsla, en við þurfum að marka okkur stefnuna.
Svo vil ég segja varðandi íslenskan landbúnað, hefðbundinn íslenskan landbúnað: Hann er vissulega misjafn. Hann er allt frá því að vera sauðfjárrækt, sem er alveg á mörkum þess að geta verið vottuð sem lífræn framleiðsla á ákveðnum býlum þó að bændur hafi ekki farið þá leið. Kannski vantar bara stuðninginn eða fræðsluna til að geta tekið skrefið. En ég vara jafnframt við því að við séum að markaðssetja íslenska lambakjötið eins og það sé lífrænt vottað. Þetta er vistvæn vara og hún verður aldrei annað en það. Við eigum líka að gæta okkar á því að vera ekki að markaðssetja mjólkurvörur, eins og skyrið, sem hreina afurð því að kúabændur eiga mjög erfitt með að vera með fóður sem ekki er erfðabreytt, samanber maísinn og innflutt kjarnfóður. Ef farið væri að skoða þetta gætum við fengið á okkur bletti sem væri kannski erfitt að hreinsa okkur af. Við verðum að selja slíka vöru undir þeim merkjum að markaðssetningin sé sönn og undir þeirri framleiðslu eins og hún í rauninni er.
Ég þakka undirtektirnar og ég er alveg sannfærð um að ef við höfum þá framtíðarsýn að vera sjálfbær hvað varðar matvælaframleiðslu á þeim vörum sem mögulegt er að framleiða hér á landi, það eru mjög margar tegundir og þeim hefur fjölgað, mun það verða þjóðinni til farsældar.