139. löggjafarþing — 133. fundur, 26. maí 2011.
umfjöllun félags- og tryggingamálanefndar og samgöngunefndar um skýrslur Ríkisendurskoðunar.
Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 20. maí 2011, hefur forseti óskað eftir því við félags- og tryggingamálanefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Vinnumálastofnun. Forseti hefur einnig óskað eftir því við samgöngunefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um samgönguframkvæmdir.
Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.