svör við fyrirspurnum.
Hæstv. forseti. Ég tek undir orð hv. síðasta ræðumanns. Ég held að það sé afar jákvætt hvernig hæstv. forseti tekur í þá málaleitan sem fram hefur komið í þessari umræðu og við þingmenn, ekki síst þingmenn stjórnarandstöðunnar, hljótum auðvitað að treysta á forseta í þessum efnum.
Eins og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson gat um er mikill bunki af ósvöruðum fyrirspurnum og ósvöruðum skýrslubeiðnum sem þarf að bregðast við núna. Það er hins vegar líka alveg rétt sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir gat um, þetta atriði hefur verið rætt nokkuð á vettvangi þingskapanefndar og þar erum við að velta fyrir okkur, án þess að vera kannski endilega komin með lausn, hvernig hægt sé að auka agavald þingsins gagnvart ráðherrum hvað þetta varðar. Ég held að það sé afar mikilvægt.
Þegar talað er um að lauma málum inn (Utanrrh.: Ég get …) — sagði hæstv. utanríkisráðherra þegar hann laumaði sér inn í umræðuna — er það auðvitað þannig (Forseti hringir.) að þegar langir listar af málum koma á síðasta degi þingsins stappar það nærri því að svörum sé laumað inn.