svör við fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé afskaplega góð og þörf umræða undir þessum lið. Það er freistandi að spyrja hæstv. ráðherra, sem segir að flestir ráðherrar reyni að skila á tíma og að fæstir reyni að lauma inn svörum, hverjir reyni ekki að skila á tíma og hverjir reyni að lauma inn svörum. Ég ætla hins vegar ekki að gera það neitt sérstaklega, virðulegi forseti.
Við erum að tala um alvarlegt mál sem hefur farið mjög versnandi á síðustu missirum, það varðar tíma svaranna og síðan líka hvernig er svarað. Þá er ég að vísa í að þetta eru óvönduð svör og ég get fundið mörg dæmi þess. Það sem ég vakti athygli á, virðulegi forseti, er algjörlega í höndum Alþingis. Það snýst um að þegar málefnaleg bón kemur fram og er samþykkt, eins og að fá gesti á fundi og taka fyrir ákveðin mál, í þessu tilviki stórmál sem var gert 7. mars, er það (Forseti hringir.) þingið sem bregst ekki við. Ég hvet hv. þingmenn til að velta því fyrir sér og sérstaklega formenn þingflokkanna.