ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 102/2010 um breytingu á X. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það þekkir það enginn betur en hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, sem er ekki bara formaður hv. utanríkismálanefndar heldur hefur líka margvíslega reynslu af Brussel og Evrópusambandinu, að við erum að setja af stað ferli sem hefur afleiðingar í för með sér. Hv. þingmaður segir að þetta hafi mjög litlar afleiðingar en það verði nánar tilgreint í lagafrumvarpi hverjar þær eru.
Ég er bara að velta fyrir mér hvaða afleiðingar traustlisti yfir vottunaraðila hafi. Hefur kerfið hjá okkur fram til þessa verið aðfinnsluvert? Hefur þetta ekki verið traust? Ég spyr einfaldlega vegna þess að maður hefur ekki heyrt af neinu vafasömu. Ég veit ekki betur en að þetta hafi gengið prýðilega fram til þessa. Það hlýtur að hafa verið farið yfir það í umfjöllun nefndarinnar hvað það þýðir að setja þennan svokallaða traustlista og hvaða bætingu það hefur í för með sér fyrir það umhverfi sem við búum við núna. Þó að maður fái stundum á tilfinninguna að hlutirnir séu gerðir á þessum vettvangi án ástæðu finnst mér það ekkert sjálfgefið og ætla ekkert að gefa mér það sem forsendu.
Það væri gott ef hv. þingmaður mundi aðeins útskýra hvaða afleiðingar það hefur í för með sér að setja á þennan svonefnda traustlista, hvernig við bætum það umhverfi sem við erum með núna og hvort umhverfið eins og það er núna sé aðfinnsluvert að fleira leyti en þessu ef þetta er þá (Forseti hringir.) þess eðlis að það þurfi að bæta það.