139. löggjafarþing — 134. fundur,  27. maí 2011.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 102/2010 um breytingu á X. viðauka við EES-samninginn.

544. mál
[12:29]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni ræðu hans. Mig langar að biðja hann að bregðast við því sem hæstv. utanríkisráðherra sagði áðan þegar hann talaði um þinglega meðferð EES-málanna, sem hefur nú orðið mikil breyting á í kjölfar skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis. Ég skildi orð hæstv. utanríkisráðherra þannig að hann gæfi svo sem ekki mikið fyrir þá þinglegu meðferð, sem er þó búið að bæta töluvert, og reyndin væri sú að við þyrftum að gleypa blóðhrátt allt sem kemur frá Evrópusambandinu. Lausn hans var sú að við yrðum að ganga í sambandið. En hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni að atkvæðavægi okkar væri um 1% ef við gengjum í Evrópusambandið.

Því vil ég spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi hvort hann hafi skilið orð hæstv. utanríkisráðherra eins og ég gerði. Í öðru lagi hvort hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki töluvert álit á (Forseti hringir.) málflutningi sem á að skila 1% í Evrópusambandinu.