ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 102/2010 um breytingu á X. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Mjög áhugavert hefur verið að fylgjast með þessari umræðu sem er náttúrlega ákveðið framhald af umræðu sem hefur verið í þinginu um hvernig við innleiðum tilskipanir frá Evrópusambandinu. Eitt af því sem ég mundi gjarnan vilja ræða við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson varðar einmitt þessa hugmyndafræði af því að við þingmaðurinn sitjum saman í viðskiptanefnd. Töluvert af ábendingum hefur komið fram eftir hrun, og lagafrumvörp, t.d. í tengslum við slit fjármálafyrirtækja þar sem komið hefur í ljós að við hefðum getað innleitt þessar gerðir betur. Ágreiningur hefur jafnvel verið um þýðingar. Mér skilst að í Svíþjóð, sem er aðildarríki að Evrópusambandinu, séu gerðirnar innleiddar beint. Þeir setja þær ekki inn í fyrirliggjandi lög heldur sem sérlög. Gæti það komið til móts við þær áhyggjur sem menn hafa hér? Við höfum í raun staðfest tilvik um að innleiðing hefur ekki verið með réttum hætti.
Þingmaðurinn fór að vísu mjög nákvæmlega í ræðu sinni yfir áhyggjur sínar af því að við höfum ekki áhrif og beitum okkur ekki á þeim sviðum sem skipta okkur máli. Ég mundi gjarnan vilja fara aðeins í það í seinna andsvari mínu og ég vona að hv. þm. Árni Þór Sigurðsson komi hér aftur upp. Að mínu mati hefur vandamálið kannski ekki snúið að Alþingi svo mjög heldur mun meira að því hversu veikburða stjórnsýslan er hér og hvort smáríki eins og Ísland og stjórnsýsla þess hafi raunverulega burði til að sinna því að halda utan um EES-samninginn, hvað þá að það geti verið fullgilt aðildarríki.