139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

afbrigði um dagskrármál.

[11:49]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Að jafnaði hef ég verið frekar lipur gagnvart meiri hluta á hverjum tíma um það að samþykkja afbrigði vegna dagsetningarinnar 1. apríl. Ég væri það líka í þessu tilviki ef málið væri fullunnið. Ef frumvörp ríkisstjórnarinnar um sjávarútvegsmál væru tilbúin mundi ég líta á þetta öðrum augum.

Nú liggur fyrir, eins og fram hefur komið, að þrátt fyrir að hæstv. ríkisstjórn og stjórnarflokkarnir hafi verið að vandræðast með þetta mál í heilan vetur er ekki enn búið að ná sátt um það innan stjórnarflokkanna. Alvarlegar athugasemdir hafa verið gerðar, m.a. varðandi stjórnarskrárþátt málsins. Það liggur ekki fyrir hagfræðileg úttekt á málinu þannig að það er alveg ljóst að fullkomlega ótímabært er fyrir þingið að taka þessi mál til umræðu núna og miklu betri bragur (Forseti hringir.) að geyma það.