139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

fundarstjórn.

[15:02]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Virðulegi forseti. Það er mjög brýnt að hæstv. forseti Alþingis veiti svör við þeim fyrirspurnum sem hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir varpaði hér fram. Það er í fyrsta lagi mjög óvenjulegt og í annan stað mjög alvarlegt að ráðuneyti hæstv. fjármálaráðherra komi fram með umsögn um stjórnarfrumvarp hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þess efnis að þar er því svo gott sem slegið föstu að efni frumvarpsins brjóti gegn stjórnarskránni. Ég man ekki eftir því síðan ég settist fyrst inn á þing árið 2003 að ráðuneyti fjármála lýsi því yfir að hæstv. ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar eða annar hæstv. ráðherra brjóti með frumvarpsflutningi sínum stjórnarskrá. Þess vegna er þessi spurning mjög áleitin sem hæstv. forseti verður að svara: (Forseti hringir.) Var farið yfir þessi álitaefni áður en málin voru lögð fram og tekin til umfjöllunar á þinginu?