139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[15:45]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kom inn á það að formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins hefði talað um tómstundaveiðar þegar strandveiðar væru annars vegar. Ég vildi gjarnan heyra viðhorf hans gagnvart því hvort hann telji strandveiðar vítt og breitt um landið tómstundaveiðar í raun. Upplifir hann það þannig í þeim sjávarplássum sem hann þekkir vel til í?

Svo vil ég líka gjarnan heyra betur viðhorf hans til veiðigjaldsins og hvernig því er ráðstafað. Hann talar um að það væri mannsbragur að ráðstafa milljörðunum 2 í heild sinni í sjávarbyggðirnar. Það væri mjög gott að fá nánari útfærslu og hvort hann sjái að höfuðborgarsvæðið kæmi þar inn sem stór verstöð.