stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Mér varð það á í fyrra svari mínu að lýsa því yfir að tveir væru góðir grundvallarkostir við kvótakerfið og það varð hv. þm. Jóni Gunnarssyni tilefni til að ganga í ræðustólinn og lýsa því yfir að ég hefði ekki hundsvit á sjávarútvegsmálum. (Gripið fram í.) Ég hygg að ég fari varlega í því að taka undir fleira í málflutningi hv. þingmanns, en það er auðvitað þannig að við verðum að horfast í augu við gallana líka. Þeir eru alvarlegir, hin gríðarlega skuldsetning sem kvótakerfið leiddi til fyrir sjávarútveginn, það að menn löbbuðu út úr greininni með gríðarlegar fjárhæðir sem fóru margar hverjar í lítið og síðan það að þarna er sveiflukennd afkoma af því að við erum ekki að taka auðlindarentuna, núna 2009 45 milljarða hagnaður samkvæmt arðgreiðsluaðferð Hagstofunnar, sem skapar mikinn (Gripið fram í.) þrýsting á aðrar atvinnugreinar og á verðbólguþróun í landinu. Það er auðvitað eitthvað sem við þurfum að bregðast við og reyna að vinna á þessum ágöllum. Ég lít svo á að það sé verkefnið sem fyrir þinginu (Gripið fram í.) liggur, þ.e. að styðjast við kosti kerfisins en sníða af því gallana. (Gripið fram í.)