stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Eitthvað var brogað við röksemdafærsluna. Það er algerlega ljóst að ef tekinn er kvóti af útgerðum og færður til einhverra annarra þá lækka meðallaunin hjá þeim sem eru með kvótann í dag. Þetta eru 4.600 sjómenn og ég skil þetta á engan hátt annan en að þingmaðurinn vilji lækka laun 4.600 sjómanna til að færa öðrum sem vilja koma inn í greinina, og munu fyrir það þiggja mun lægri laun.
Mig langar til að spyrja þingmanninn út í annað, þ.e. siðferðið við það að þeir sem hafa selt kvótann sinn undanfarin ár, hvernig henni finnist siðferðið í því að vera síðan komin í þá stöðu að berjast fyrir afnámi kvótakerfisins.