139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[17:19]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þingmaður megi ekki tala þannig að allt sé öruggt í starfsumhverfi sjávarútvegsins. Við erum að gagnrýna það að bætt sé við óöryggið sem á vissan hátt er í kringum greinina af náttúrulegum ástæðum og að hinu pólitíska óöryggi sé bætt við ofan í kaupið.

Mig langar að spyrja hv. þingmann einfaldra spurninga af því að við höfum stuttan tíma í andsvörunum. Ég gagnrýndi mjög harðlega skiptingu strandveiða áðan í ræðu minni. Nú vil ég spyrja hv. þingmann sem er formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og við þekkjum bæði tvö þessi mál býsna vel, búum hvort sínum megin við Grárófuheiðina, vill hv. þingmaður beita sér fyrir því að þessari skiptingu strandveiða verði breytt þannig að meira jafnræðis verði gætt?

Svo vil ég spyrja hv. þingmann jafnframt að því sem kom fram í máli félaga okkar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hv. þm. Helga Hjörvars, að sérstaklega þyrfti að fara yfir það hverjir hafi fengið strandveiðileyfin. Þarna er auðvitað verið að ýja að því sem allir vita að mjög margir hafa verið í þeirri stöðu að þeir hafa selt frá sér aflaheimildir, átt bátana skuldlausa, komið inn í strandveiðarnar aftur og farið að keppa við þá sem eru í útgerðum og sitja uppi með skuldirnar. Getur hv. þingmaður (Forseti hringir.) tekið undir að athuga þurfi sérstaklega hverjir hafa fengið þennan veiðirétt (Gripið fram í.) og gera mögulega breytingar í framhaldi af því?