stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég get ekki tekið undir ótta þingmannsins um að þetta kerfi muni hafa þær afleiðingar sem hann lýsir. Ég hef ekki áhyggjur af því að þetta verði raunin. (GBS: Þetta er að gerast.) Þetta er ekki að gerast því kerfið er ekki komið á. Það getur ekki gerst meðan kerfið er ekki komið á.
Það sem við boðum er að mæta byggðum sem hafa farið illa út úr kvótakerfinu með aflaaukningu. Við þekkjum það öll hér hve gífurlegur tilflutningur hefur verið á aflaheimildum og atvinnu í landinu og við erum ekki sátt við það, vona ég. Eitthvert jafnræði og jafnvægi verður að vera, að þetta geti ekki gerst sisvona án þess að stjórnvöld, sveitarfélög og íbúarnir hafi nokkuð um það að segja. Ég segi að allir íbúar þessara sjávarplássa hafa byggt greinina upp og eiga sinn rétt, alveg eins og hver og einn útgerðarmaður eða hlutafélag. (ÓÞ: Heyr, heyr, vel mælt.)