139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[17:28]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég óttast það að hv. þingmaður hafi ekki kynnt sér frumvarpið því hann þarf ekki að bera kvíðboga fyrir því að þetta verði.

Í minna frumvarpinu sem við ræðum í dag er talað um að auka þorskkvóta til strandveiða um 3.000 tonn. Það munar um minna. Hægt er að reka heilt frystihús á einu ári með þeim afla. Þetta er mikil aukning. Hv. þingmaður segist ekki skilja þá hagfræði að einhver eigi 100 fiska og einhver annar taki af þeim 100 fiskum, en hvað ef þessi sem á 100 fiska hefur tekið frá einhverjum öðrum og sá situr eftir með 50 fiska? Við þurfum að horfa á heildarmyndina og samhengi hlutanna. (Gripið fram í: Á að refsa þeim sem …) Við viljum byggja upp réttlátara kerfi en verið hefur þar sem eru skýrar leikreglur, jafnræði og aðgengi að sjávarauðlindinni, þetta er ekki ótakmörkuð auðlind en við eigum hana öll.