139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[17:59]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kom inn á hugmyndir sem ég reifaði áðan í ræðustól um breytingar á strandveiðikerfinu varðandi svæðisskiptingu og útdeilingu afla. Ég hef haft þær hugmyndir og ekkert legið á þeim að mér finnst koma til greina að skipta aflanum upp á daga til móts við fjölda bátanna og tímabilin væru einn mánuður í senn. Ég held að það mundi róa kerfið mikið ef minni bátar færu ekki í samkeppni við stærri báta í leiðinlegum veðrum og stofnuðu þannig öryggi sínu í hættu og það drægi einnig úr þeirri eilífu togstreitu milli landshluta sem vissulega er til staðar í dag. Ég mun því tala fyrir þessum breytingum áfram.