139. löggjafarþing — 135. fundur,  30. maí 2011.

stjórn fiskveiða.

826. mál
[18:23]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að segja að ég vefengi niðurstöðu þessarar skýrslu. Hins vegar getum við eflaust túlkað niðurstöður hennar hvort með sínum hætti og velt fyrir okkur forsendum og einhverju slíku. Mér dettur ekki í hug að halda því fram að háskólasetrið hafi ekki vandað til verka eða gert sitt besta til að gefa raunsæja mynd af þessum málum.

Hins vegar vil ég segja varðandi hvað felist í samningaleiðinni að hún felist vitanlega í því að ríkisvaldið og þeir aðilar sem fara með aflaheimildir nú setjist niður og ræði það sín á milli hvernig við getum samið um að losa um hinn meinta — nú ætla ég bara að nota það orð sem hæstv. ráðherra hefur notað — eignarrétt á aflaheimildum og auðlindinni. Ég held nefnilega að það sé farsælla að ræða málið og ná samkomulagi en að beita yfirgangi eða ofbeldi sem kann að leiða til áralangra málaferla (Forseti hringir.) við ríkisvaldið. (Gripið fram í.)